23.1.2007 | 16:23
Stjórnarandstaðan nælir sér í atkvæði
Það verður að segjast eins og er að stjórnarandstaðan spilaði alveg brilliant úr þessu. Byrjuðu á að taka frekar léttvægt og sjálfsagt mál og snúa því í langt málþóf eins og um heill þjóðarinnar væri að ræða - gáfust síðan upp á dramatískan hátt eins og Spartverjarnir í gilinu forðum, þegar ljóst var að þeir myndu aldrei geta stöðvað þetta. Þetta hefur verið vel auglýst og augljóslega aðalmálið í fréttum síðustu daga, hvernig andspyrnan ver alþýðuna gegn vonda veldinu (í þessu tilfelli klárlega Sjálfstæðisflokknum, sem er greinilega Satan sjálfur í augum þessa fólks) og eftir kosningar, ef þjóðin lofar, mun þetta víst verða leiðrétt!
Hitt er svo alveg ljóst, að þingið er bara stimpill fyrir ríkisstjórnina. Mér finnst í raun stórundarlegt að stjórnarandstaðan mæti í þingið, þeir hafa ekkert þangað að gera sem þeir geta ekki gert í gegnum sjónvarpið heima hjá sér. Á meðan framkvæmdavald og löggjafarvald er samsnúið eins og nú er mun þetta halda áfram. Fyrir léttvæg mál eins og þetta, svo og alvarlegri.
Frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. samþykkt á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.