29.1.2007 | 09:53
Læknir meiðist við að reyna að stöðva slagsmál á slysadeild
Yfirlæknir slysadeildar Landspítala - Háskólasjúkrahúss, Ófeigur Þorgeirsson, hefur nú í nokkurn tíma kvartað sáran yfir þeiri ofbeldisöldu sem er að ganga yfir landann. Hann hefur, réttilega, bent á að það þurfi eitthvað að gera í þessum málum. Nú er þetta orðið svo alvarlegt að starfsfólk slysadeildar verður fyrir áverkum af völdum ofbeldis við störf sín!
Hvers konar þjóðfélag getur ekki tryggt heilbrigðisstarfsfólki vernd gegn ofbeldi sjúklinga sinna? Ef við ætlum líka að fara að ræða um þau mál; í hvers konar þjóðfélagi sleppur fólk létt með árásir á lögreglumenn? Samfélag sem sættir sig við að lögreglumönnum sé jafnvel það ógnað að það hafi áhrif á störf þeirra? Sem betur fer eiga ný lögreglulög að tryggja lögreglumönnum betri vernd.
Aftur að heilbrigðisstarfsfólkinu. Það er einn lögreglumaður á slysó á nóttinni um helgar - ég hugsa að það sé alveg klárt mál að það þurfi að fjölga þeim, eða a.m.k. einhverskonar öryggisvörðum.
Uppfærsla: Ég finn að vísu ekki þessi nýju ákvæði í lögreglulögum eða hegningarlögum, þar sem brot gegn valdstjórninni eru. Við leitina sá ég samt að miklar refsiheimildir eru í lögum fyrir að hindra störf lögreglu, svo og hótanir og ofbeldi gegn þeim. Tveggja ára fangelsi fyrir hindranir, 6 ár ef ofbeldi eða hótanir, en 8 ár ef viðkomandi er "aðalmaður" í hópsöfnuði gegn lögreglunni. Áhugavert að það virðist ekki vera réttarhefð fyrir því að nota þessar heimildir. Samkvæmt vefsíðu Landsambands lögreglumanna ætlar dómsmálaráðherra að breyta hegningarlögum á yfirstandandi þingi.
Læknir meiddist þegar hann reyndi að stöðva slagsmál á slysadeild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:05 | Facebook
Athugasemdir
Það er mikið álag á starfsfólk slysaseildarinnar og sérstaklega um helgar. Læknar og hjúkrunarfræðingar auðsýnilega í hættu. Þeir sem valda ofbeldinu sýna þessum aðilum enga virðingu, sennilega einnig sjálfum sér. Ef það er satt að það sé einungis einn lögregluþjónn á staðnum, er alvarlegt mál. Ein lögregla gerir enga stóra hluti ef ofsinn í ofbeldismönnunum er einhver að ráði.
Það ætti að lyfjaprófa alla þá sem beita einhvers kona ofbeldi, til að getað séð hvort ofbeldið er vegna einhverja ólöglegra lyfja, fíkniefna eða ölvunar. Við vitum það ekki nema að taka slík próf.
Áslaug Sigurjónsdóttir, 29.1.2007 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.